heppin?
Mér er spurn. Ég er löngu búin að komast að því að ég er lang heppnasta manneskja í heiminum. Það getur enginn toppað hvað ég er heppin. óniiii.... Lífið er svo sannarlega dans á rósum hjá mér þessa dagana. Ég syng hreinlega í gegnum lífið. Án gríns ég bregst stundum í söng og fljúgandi blóm fljúga útum allt hjá mér.
anywho.. góður vinnudagur að baki. Samt svo ekki.. ég sonfaði ekki fyrr en eitthvað um 5 leitið í nótt.. og vaknaði svo klukkan 8.. þannig ég er að drepast úr þreytu og já.. langar mest að fara bara upp í rúm og sofa og sofa og sofa.. þanngað til allt lagast. Æj ég veit svo nákvæmlega ekki neitt lengur. Stundum langar mig hreinlega bara að verða aftur svona 11 ára. Kannski hefði ég getað gert hlutina öðruvísi og ekki endað svona. Kannski, bara kannski. Skil ekki hvað guð er að leika sér að mér. Ég held því fram að guð gerir upp á milli manna. Sumir eru alltaf heppnir og fá allt. Aðrir fá ekki neitt, missa allt og lifa óhamingjusamir til æviloka. Hvor megin vilt þú vera?
og oj.. eruð þið búin að heyra um hvolpin sem fannst í dag sem hefði verið jarðaður á lífi?. Hvaða sjúka manneskja gerir svona hluti?. Þetta er náttúrulega ekkert nema ógeðslegt að fólk skuli láta sér detta það í hug að jarða hvolp. Bara lifandi verur yfir höfuð. þetta er ekkert nema sjúkt. Þegar ég heyrði þetta fór ég að hugsa um það sem afi sagði mér einu sinni frá þegar ég var lítil. Ég fór oft upp í bát til hans þegar ég var lítil "höfrungur" hét þáverandi báturinn hans. Ég var alltaf að spurja hann hvað hann hafi veitt.. og bað hann alltaf að segja mér frá svona fáranlegum hlutum sem hann hefur veitt, eins og dúkkuhausinn sem hann er alltaf með hjá stýrinu í bátnum hjá sér. Þá sagði hann mér frá því að hann hafi oft bara veitt eitt stykki dauðan kött. Hann sagði að margir stunduðu það sem vildu ekki lengur eiga kött, að setja hann ofan í poka, binda fyrir og henda þeim út í sjó.
Sem er náttúrulega bara ógeðslegt.
anywho.. er farin að finna tilgang lífisins. Ef hann er þá til.
-EllenRutBaldursdóttir





eeeeeen já... 







