hef ekert að gera svo hér kemur eitt blogg.. :)
Ásdís að koma eftir svona hálftíma .... ííííhhh.. hlakka til ;) .. það varður nú þægilegt að fá að sjá þessa pjásu, búin að sakna hennar alltof mikið :);*
Annars hafa mínir undanfarnir einkennst af : vinnu, vinnu, friends, friends, sjúkrahús og svo aftur friends. 
já, ég fór á sjúkrahúsið í gær á norðfirði.. lét fjarlægja þennan tvíburabróðir. var svæfð. þessi aðgerð átti að taka bara rétt svo 10 mín.. nei nei.. ég var svæfð.. svo var ég aftur vakin útaf læknarnir áttu erfitt með að koma slöngunni ofan í barkan á mér, útaf því að það var svo mikið slím víst þar. Þannig það var drifið mig í röngenmyndatöku. til að gá hvort að það sé ekki í lagi með lungun mín, ég hafði ógeðslega miklar áhyggjur af því. Svo kom í ljós að það sé bara í fínu lagi með þau. þannig það var ákveðið að staðdeyfa mig. þannig ég var vakandi á meðan aðgerðin var gerð. Það var ekki svo þægileg tilfining. svo segir læknirinn við mig að ég eigi að vera þarna yfir nótt. Ég fékk kast og neitaði algjörlega að vera þarna, útaf þvi að ég vildi fara aftur upp á egs. Sem ég veit ekki alveg afhverju það var. fékk að fara heim klukkan 8.. það var ekki gaman að liggja þarna.. Lilja sæta ástin mín vorkenndi mér svo mikið að hún fékk samúðarplástur þegar ég fékk plásturinn þegar það var tekið nálina úr mér sem ég var með eftir að hafa fengið næringuna í æð. Algjört rassgat. svo var hún alltaf að nudda á mér höndina og segjaði ,, æji óó".. og nuddaði plásturinn á sér og sagði ,,æji óó".. algjört rassgat. Fór svo að hágráta þegar ég fór útúr bílnum þegar ég var fyrir utan hérna í kjallaraíbúðinni sem ég er í núna.
Í gærkveldi nennti ég svo engann veginn að vera hérna inni að gera ekki neitt .. þannig ég og Alex ákvöddum að klæða okkur upp og mála okkur geðveikt mikið .. og fórum á rúntinn með Ævari og Begga.. vorum meiri hlutan fyrir utan ballið, sem var ekkert svo gaman. Hlýtur að hafa verið hundleiðinlegt ball. eða ég vill allavega halda í vonina í það.
Í morgun þegar ég kom aftur heim, þá fórum við bara upp í shell að borða, semsagt ég, Alex, Beggi, Ævar og ElvaBára. ég með þannig séð 2 pörum. ííí.. ég veit ekkert hvort að ævar og Elva séu saman segi bara svona. svo fengum við alex bílinn hans Begga og vorum á rúntinum í næstum því allan dag með tónlistina í botni. góður dagur.
Anywho... segið mér einhverjar fréttir krússidúllurnar mínar:) 
sæt mynd af mér og Natani kallinum;*
-ellenrutbaldursdóttir.
