minningar
[music: The way I are- Timberland]
[mood: lala, var að vakna :@]
aaa.. ég er búin að vera að skoða gamlar myndir frá því ég vaknaði. Shit hvað ég væri mikið í að upplifa margt af þessu aftur.
*Skólaferðalagið
*10.bekk
*1.ár í menntaskólanum
*Sumarið áður en við fórum í menntaskóla
og svo margt margt margt fleira.
*haha krakkar sem voruð með mér í bekk. Munið þið eftir því þegar við vorum að fara á Fields og nanna var sofandi í bílnum, svo allt í einu fer hún að öskra þessa þvílíku píkuskræki útaf því að hún vaknaði við það að það var einhver fluga að fljúga í kringum andlitið á henni. Það var fyndið. Nanna varð ógeðslega pirruð útaf því að við vorum pirruð útaf þessum píkuskrækjum.
*Vordís mannstu eftir góóðu helginni okkar sumarið áður en við fórum í ME. Mamma var á fæðingardeildinni og þú varst hjá mér eina helgina. þú varst að vinna yfir helgina, en það stoppaði okkur ekkert. Djömmuðum mjöög mikið :) .. Kynntumst helling af strákum. Begga, Eimari, Valla og ég man ekki hvað hinir heita. góður tími... Sumir ætluðu að elta þig heim þegar þú fórst að sofa. Kvöldið eftir fórum við í olbogapartýið. og Róbert seldi mig í staðin fyrir eld. Þessi Helgi var búin að vera að reyna við mig allt kvöldið og róbert gaf mig honum. arg.. svo elti hann okkur heim :o.. mannstu eftir því ?
*ooog þegar við fórum að lita alla svarta í framan af ösku þetta sama kvöld :) .. góður tími já.
10.bekkur var líka bara æðislegur. Drama drama drama, sem virðist ennþá eltast við mig :).
*aaah... Ylfa mannstu þegar þú fékkst að fá að vera hjá mér um helgi. Sagðir við mömmu þína að þig langaði svo mikið að sjá þegar það var verið að vígja nýja leikskólann. en það eina sem við gerðum var að drekka.. :').. við fórum samt ógeðslega þunnar og ógeðslegar á vígsluna. Vorum líka fljótar að fara að gera eitthvað annað.
við vorum alveg óaðskiljanlegar þegar ég var í 10.bekk, þanngað til þessi helvítis smábarnalegu vandamál komu upp, sem skiptu nákvæmlega ekki neinu máli.
*haha mannstu líka sumarið áður en ég fór í 10.bekk og þú fóst í 9.bekk.. Karen Elva kom til þín og þið komuð svo til mín og við fórum á tjaldfylleríið. Það var ógeðslegt kvöld. Ég var ógeðslega drukkin og gerði mig að ógeðslega miklu fífli. það var spes. Fyllerí upp á bóndavörðu. haha..
svo líka sama sumar fór ég einhver tíman í vogana og kynntist henni Sigrúnu. vorum einhver tíman í göngutúr og vorum svo kannski ekki búnar að tala saman í svona 2 mín, þá byrjuðum við báðar alltaf að syngja nákvæmelga sama lagið og nákvæmlega sömu setninguna. það skéði svona 100 milljón sinnum fyrir okkur þetta sumar.
æðsilegir tímar sem ég væri bara mikið til í að upplifa aftur. Margt sem maður gæti nú samt breytt, en það er ekkert gaman. Ég hef nú gert mörg mistök í gegnum ævina og oft sagt að ég sé eftir þeim og viljað breyta þeim. Sannleikurinn er bara sá að maður á ekki að sjá eftir hlutum. Ef þeir hefðu kannski farið öðruvísi eða maður hefði ekki gert þá, þá værir maður kannski ekki sama manneskjan og maður er í dag. Spurning. Kannski gerist allt fyrir ástæðu. Ég vil allavega trúa því. Að það er ástæða fyrir öllu.
Kannski er mér bara ætlað að fara til tunglsins. ohh.. mig langar til tunglsins.
Já, þetta var nú langt og misskemmtilegt blogg. Kannski að maður fari að drulla sér í það að taka dótið uppúr töskunum hérna og gera þetta heimilislegra fyrst ég er nú að fara að vera hérna á annað borð. Nenni ekki að fara að búa í töskunum áfram. fötin mín eru útum allt hérna á gólfinu *flaut*
Já, látum þetta bara gott heita.. ég vil samt fá fleiri comment takk tíkur :)
elska ykkkur;*
